Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16252
Lokaverkefnið mitt er handbók um þjálfun barna á skíðum. Verkefnið skiptist í tvo hluta, annarsvegar í fræðilegan kafla og hinsvegar handbók um skíðaþjálfun barna. Þörfin fyrir aðgengilegt efni sem varðar skíðaþjálfun barna varð kveikjan að þessu lokaverkefni. Í fræðilega kaflanum er fjallað um hversu mikilvæg íþróttaiðkuna barna og unglinga þarf að miðast við þroska aldur og áhuga. Einnig er fjallað um hlutverk þjálfarans miklvægi þess að þjálfun sé markviss, skipulögð og um fram allt fjölþætt. Skíðahandbókin inniheldur hugmyndir af fjölbreyttum skíðaæfingum og skemmtilegum leikjum fyrir börn. Bókin er ætluð sem aðgengilegt æfingasafn fyrir þjálfara, foreldra og skíðafélög.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Handbók um þjálfun barna á skíðumdocx.pdf | 2.23 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |