is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1626

Titill: 
  • Andleg líðan einstaklinga í offitumeðferð á Reykjalundi og eftir hjáveituaðgerð á maga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Offita telst til alvarlegustu heilsufarsvandamála í heiminum í dag. Dánartíðni offitusjúklinga er tvöföld miðað við þá sem eru í kjörþyngd. Rannsóknir hafa sýnt að veruleg ofþyngd hefur margþætt áhrif á heilsu, félagslega virkni, andlega líðan, sem og lengd og gæði lífsins. Offita skerðir lífskjör fólks verulega. Þátttaka þess í samfélaginu minnkar, einstaklingar í ofþyngd verða fyrir fordómum og upplifa sig
    utanveltu í þjóðfélaginu. Ýmsir geðrænir kvillar hrjá suma offitusjúklinga.
    Algengastir eru kvíðasjúkdómar og þunglyndi.
    Rannsóknin byggir á gögnum um 264 einstaklinga sem höfðu farið í
    offitumeðferð á Reykjalundi. Konur voru 79,9% (N=211) og karlar voru 20,1%
    (N=53). Rúmlega helmingur þeirra 52,3% (N=138), þar af 118 konur og 20 karlar
    fóru í hjáveituaðgerð á maga. Alls 47,7% (N=126) fóru ekki í aðgerð.
    Rannsóknin var tvíþætt. Fyrst var unnið upp úr upplýsingum um alla
    einstaklingana við komu í offitumeðferð, í seinni hlutanum voru aðeins skoðaðir þeir
    sem fóru í aðgerð og til voru gögn um á þremur tímapunktum: í offitumeðferð, eftir
    5 vikna meðferð fyrir aðgerð og við lok 3 vikna meðferðar eftir aðgerð. Listarnir
    Beck Depression Inventory, 2. útg. (BDI-II) og Beck Anxiety Inventory (BAI) voru
    notaðir. Yngsti einstaklingurinn sem kom í offitumeðferð var 14 ára og sá elsti 68
    ára. Þyngsti einstaklingurinn var 205,1 kg karlmaður og sá léttasti var 93,2 kg kona.
    Marktækur munur kom í ljós milli kynja á því hvort farið var í aðgerð eða ekki
    ( ²(1,n=264)=4,912;p=0.027). Konur fóru frekar í aðgerð en karlar.
    Aðalrannsóknarspurningin snéri að því hvort það að fara í hjáveituaðgerð á maga
    bætti þunglyndi og drægi úr kvíða einstaklinga. Niðurstöðurnar voru að það dró úr
    þunglyndi [Wilks´Lambda =.412, F(2,22)=15,68, p<.05] og kvíðinn minnkaði einnig
    á þessum þremur tímapunktum [Wilks´Lambda =.516, F(2,22)=10,32, p<.05].
    Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að það gætu verið tengsl á milli
    offitumeðferðar á Reykjalundi, hjáveituaðgerðar á maga og lækkunar á þunglyndis og kvíðaeinkennum.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 10.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1626


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA-lokaskjal 08.05 PDF.pdf3.4 MBLokaður"Andleg líðan einstaklinga í offitumeðferð í Reykjalundi og eftir hjáveituaðgerð á maga"-heildPDF
BA-lokaskjal 08.05 PDF_útdráttur.pdf44.37 kBOpinnútdrátturPDFSkoða/Opna
BA-lokaskjal 08.05 PDF_efnisyfirlit.pdf38.37 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
BA-lokaskjal 08.05 PDF_inngangur.pdf94.26 kBOpinninngangurPDFSkoða/Opna
BA-lokaskjal 08.05 PDF_heimildaskrá.pdf46.32 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna