Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1637
Samkvæmt rannsóknum hefur atferlisíhlutun með myndbandseftirhermun gefið góða raun við þjálfun barna með einhverfu. Það sem börn með einhverfu eiga hvað erfiðast með er ímyndunarleikur, enda er skortur á honum talinn eitt af einkennum einhverfu samkvæmt DSM-IV greiningar¬kerfinu. Í þeirri rannsókn sem hér er gerð grein fyrir var tíðni leikhegðunar og þematengdrar málnotkunar tveggja stúlkna á fjórða aldursári mæld. Markmiðið var að auka leikhegðun þeirra í ímyndunarleik. Önnur er greind með einhverfu en hin er tvítyngd með eðlilegan þroska. Báðar stúlkurnar fengu íhlutun með myndbandseftirhermun þar sem þema ímyndunarleiksins var eldhús. Rannsóknarspurningarnar voru hvort íhlutun með myndbandseftirhermun auki tíðni leikhegðunar og þematengdrar málnotkunar barna með einhverfu og tvítyngdra barna með eðlilegan þroska. Notast var við margfalt grunnlínusnið og hegðun stúlknanna var mæld með mælitæki á leikhegðun sem Kristín Guðmundsdóttir (2002) er að þróa. Helstu niðurstöður voru þær að tíðni leikhegðunar jókst hjá báðum stúlkunum og einnig þematengd málnotkun hjá tvítyngdu stúlkunni. Þessar niðurstöður eru í samræmi við það sem fram hefur komið í fyrri rannsóknum á íhlutun hjá börnum með einhverfu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA loka opid.pdf | 277.74 kB | Opinn | "Áhrif íhlutunar með myndbandseftirhermun" - heild | Skoða/Opna | |
BA loka lokad.pdf | 946.22 kB | Lokaður | "Áhrif íhlutunar með myndbandseftirhermun" - fylgiskjöl |