Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16384
Ritgerð þessi er lokaverkefni í meistaranámi í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er annars vegar fjallað um undirbúningsvinnu á útgáfu rafræns tímarits sem nefnist í dag Vefrit ÖBÍ og ritstjórn á því fyrsta útgáfuárið og hins vegar um ritstjórn á tveimur tölublöðum Tímarits Öryrkjabandalags Íslands.
Miklar breytingar urðu í útgáfumálum ÖBÍ (Öryrkjabandalag Íslands) með tilkomu vefritsins en farið var í heildarskoðun á útgáfustarfsemi bandalagsins við undirbúning þess. Við þá skoðun kom í ljós að mikil þörf var á því að móta stefnu í útgáfumálum ÖBÍ. Tímaritið hafði komið út í 23 ár undir mismunandi nöfnum, í mismunandi broti, með ólíkri hönnun og innihaldi og mikil þörf var á ritstjórnarstefnu fyrir blaðið. Einnig þurfti að móta ritstjórnarstefnu fyrir vefritið og skipuleggja með hvaða hætti það ætti að koma út.
Í ritgerðinni er fjallað um ritstjórnarlegar ákvarðanir sem teknar voru í útgáfuferlinu allt frá þarfagreiningu við undirbúning vefritsins til dagsins í dag en það hefur nú komið út í eitt ár. Einnig er sagt frá þeim breytingum sem gerðar hafa verið á útliti og innihaldi Tímarits Öryrkjabandalags Íslands. Lýst er hvernig ritstjórn á tveimur tölublöðum tímaritsins fór fram, annað þeirra kom út haustið 2012 og hitt vorið 2013.
Leitast er við að setja frásögnina af framangreindu útgáfuferli og ritstjórn í samhengi við fræðilega umræðu um útgáfu og ritstjórn rafrænna og prentaðra tímarita.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA-ritgerð_margret_lok.pdf | 18.43 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |