is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1640

Titill: 
  • Áhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Farsímanotkun hefur stóraukist á undanförnum árum og hefur það leitt til þess að hægt er að vera í sambandi við aðra nánast hvar sem er og hvenær sem er. Þessi þróun hefur vakið áhuga fræðimanna á þeim áhrifum sem farsímanotkun hefur á athygli ökumanna. Margar rannsóknir hafa verið gerðar til þess að skoða þessi áhrif. Tilgangur þessa verkefnis er fyrst og fremst að rannsaka áhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli og hvort munur er á kynjunum í því samhengi. Notast var við tölvuforrit þar sem kassi blikkaði tilviljunarkennt rautt eða grænt. Tölvuforritið mældi viðbragðstíma, þær villur sem gerðar voru og hversu vel þátttakendur fylgdu kassanum eftir. Rannsóknin var þrískipt og var verkefnið í tölvuforritinu leyst eitt og sér í fyrsta verkefninu en í seinni tveimur var það leyst ásamt útvarpshlustun eða farsímanotkun. Mælt var sérstaklega hvort útvarpið og síminn hefðu truflandi áhrif á frammistöðu í tölvuverkefninu. Þátttakendur voru 15 konur og 15 karlar á aldrinum 17-41 árs. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru: a) Að sími hafði meiri truflandi áhrif á viðbragðstíma en útvarp; b) að útvarp hafði meiri truflandi áhrif á eltingu en sími; c) að ekki var marktækur munur á viðbragðstíma kynjanna; d) að karlar stóðu sig marktækt verr í eltingu í útvarpsverkefninu en konur. Út frá þessum niðurstöðum er hægt að álykta að sími hefur meiri truflandi áhrif á viðbragðstíma heldur en útvarpshlustun. Einnig kom í ljós að útvarpshlustun hefur meiri truflandi áhrif á eltingu heldur en farsímanotkun. Þar sem meiri hætta skapast af truflun á viðbragðstíma má álykta að farsímanotkun við akstur geti valdið lífshættulegum truflunum við akstur.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 10.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1640


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Áhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli..pdf983.15 kBLokaðurÁhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli- heildPDF
Útdráttur-Abstract, Áhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli.pdf129.9 kBOpinnÁhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli - ÚtdrátturPDFSkoða/Opna
Efnisyfirlit- Áhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli.pdf168.19 kBOpinnÁhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli - EfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá- Áhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli.pdf172.75 kBOpinnÁhrif farsímanotkunar á tvíverkavinnslu og skipta athygli - HeimildaskráPDFSkoða/Opna