Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16417
Niðurstöður rannsóknar sem hér verður greint frá eru byggðar á eigindlegri rannsóknaraðferð. Tekin voru viðtöl við tvo þroskaþjálfa og einn starfsmann sem hafa unnið lengi að málefnum fatlaðs fólks. Viðtölin voru í samtalsformi og stuðst var við opinn spurningarlista. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þróun á atvinnumála fatlaðs fólks og þróun dagþjónustuúrræðis. Leitast var við að tengja rannsóknina við mismunandi sjónarhorn fötlunarfræðinnar, lögum og reglugerðum. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kom fram að atvinnumál fatlaðs fólks hafði þróast í gegnum tíðina, með baráttuhópum fatlaðs fólks sem vakti athygli á því að það hafnaði þeirri undirokun sem ríkt hafði í garð fatlaðs fólks. Einnig koma fram í niðurstöðum að dagþjónsutan Fagrahlíð er á réttri leið hvað varðar þróun í atvinnumálum fatlaðs fólks. Verið er að gera gagngerar breytingar á þjónustunni með því að meta þjónustuþörf og koma þannig til móts við þjónustuþarfir notenda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA14.mai.pdf | 394.13 kB | Lokaður til...14.05.2122 | Heildartexti |