is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16433

Titill: 
  • Hin (ó)sýnilega hönd: Áhrif aðila vinnumarkaðarins á stefnumótun í velferðarmálum
  • Titill er á ensku The (in)visible hand: The influence of social partners on public policy making.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Aðilar vinnumarkaðarins hafa í vaxandi mæli tekið að sér skipulag og framkvæmd velferðarverkefna sem áður voru á hendi hins opinbera. Þessi rannsókn leitast við að draga upp þróun síðastliðinna fimmtán ára í opinberri stefnumótun og er aðferðarfræði rannsóknarinnar eigindleg þar sem þrjú tilvik eru skoðuð og borin saman. Í rannsókninni eru afleiðingar þessarar þróunar skoðaðar og var rannsóknargagna aflað með greiningu á fyrirliggjandi gögnum og fimmtán viðtölum við lykilviðmælendur.
    Aðilar almenna vinnumarkaðarins höfðu myndað sér stefnu sem féll að ríkjandi umhverfi í opinberri stjórnsýslu sem einkenndist af aukinni dreifstýringu og útvistun verkefna. Fræðilegar niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna afar veikburða stjórnsýslu á móti sterkri samstöðu aðila vinnumarkaðarins sem höfðu fyrirfram skilgreint fyrirliggjandi vanda og fundið lausn á honum. Greina má af niðurstöðum rannsóknarinnar í öllum málunum að styrking verður á því kerfi sem er til staðar á almennum vinnumarkaði sem leiðir til eflingar á svokallaðri stefnueinokun og eru einkenni hennar sterk stefnuímynd og sterkur stefnuvettvangur aðila almenna vinnumarkaðarins.
    Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þegar verkefni eru færð út fyrir hið opinbera kerfi í hendur aðila vinnumarkaðarins hafi það í för með sér röskun á áhrifajafnægi og tilfærslu á völdum sem veikir íslenskt velferðarkerfi.

  • Útdráttur er á ensku

    In Iceland, the social partners increasingly take on the implementation and execution of welfare projects, formerly run by the state. By focusing on the past 15 years of public policy making, through a comparative case study of three strategically selected cases, the thesis discusses the consequences of this development. The thesis builds upon analysis of political documents and interviews with fifteen key informants, from all parts of the political scene.
    Welfare projects carried out by social partners is not only a matter of decentralization and outsourcing. Faced with a strong cohesion of social partners who has already defined the problem and found a solution to it, the thesis suggests a weakening of public administration. All three cases show a consolidation of strategic systems which reinforce a so-called policy monopoly characterized by a strong policy image and a strong policy venue maintained by the social partners.
    The thesis conclude that when welfare projects are taken out of the public administration and laid in the hands of social partners it challenges the power equilibrium between the governing bodies hence threatening the Icelandic welfare state as we know it.

Samþykkt: 
  • 9.9.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16433


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Alma Lísa Jóhannsdóttir prent eintak, loka.pdf1.26 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna