is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16484

Titill: 
  • Hægfara vinslit. Samskipti Íslands og Ísraels 1948-2013
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um samskipti Íslands og Ísraels á tímabilinu 1948–2013. Sýnt verður fram á hvernig samskipti ríkjanna byrjuðu að þróast frá 8. áratug 20. aldar úr þeirri vinsemd sem hafði einkennt þau á 6. og 7. áratugnum yfir í nánast á 21. öld. Stjórnmálatengslin eru sett í samhengi við almenn viðhorf til Ísraels á Íslandi og menningarsamskipti landanna. Einnig eru samskipti ríkjanna skoðuð með tilliti til þeirra breytinga sem urðu á afstöðunnni til Palestínumanna bæði á Íslandi og alþjóðavettvangi og hvernig þær mótuðu afstöðu Íslendinga til Ísrael á löngu tímabili. Greind verður mismunandi sýn íslenskra stjórnmálaflokka á samband Íslands og Ísraels sem varð til þess að það var helst í tíð vinstri stjórna á Íslandi sem verulegar breytingar urðu á því. Færð verða rök fyrir því að íslensk stjórnvöld hafi reynt að halda uppi sæmilega vinsamlegum samskiptum við ísraelsk stjórnvöld þrátt fyrir aukin stuðning innanlands við Palestínumenn og andúð á framferði Ísraela gagnvart þeim. Það var ekki fyrr en í tíð vinstri stjórnarinnar 2009–2013 sem það viðhorf breyttist. Þá viðurkenndu íslensk stjórnvöld sjálfstæði Palestínu án þess að setja það mál í samhengi við öryggiskröfur Ísraela.

Samþykkt: 
  • 11.9.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16484


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ba ritgerð Jakob Ólafsson.pdf390.37 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna