is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16530

Titill: 
  • Vaxtabætur: Samanburður skattlagningar vaxtagjalda á Íslandi, Danmörku, Noregi og Svíðþjóð
  • Titill er á ensku Private housing benefits: Comparing taxation interest expenses in Iceland, Denmark, Norway and Sweden
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð skoðar höfundur vaxtabætur og sögu þeirra á Íslandi frá árinu 1877 til ársins 2013. Farið verður yfir hvaða skilyrðum einstaklingar þurfa að uppfylla til að fá greiddar vaxtabætur og hvernig þær eru reiknaðar út. Skoðuð verður þróun vaxtabótakerfisins frá árinu 2005 til 2012. Gerð verða skil á hversu margir fengu greiddar vaxtabætur og hversu mikið var greitt fyrir tímabilið 1990 til 2010. Einnig var skuldastaða heimilanna vegna íbúðarlána skoðuð fyrir sama tímabil.
    Vaxtagjöld eru ekki meðhöndluð eins við skattlagningu einstaklinga á Íslandi, Danmöku, Noregi og Svíðþjóð. Markmiðið er að skoða muninn milli hvernig vaxtagjöldum er háttað í hverju landi fyrir sig.
    Niðurstöður urðu þær að erfitt var að bera löndin saman vegna þess hvað skattakerfi þeirra eru ólík. Miðað við þær forsendur sem höfundur gefur sér við samanburðinn þá kom á óvart hversu lítill munur var á milli landanna.

Samþykkt: 
  • 18.9.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16530


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Dröfn_Stína_Guðmundsdóttir_BS.pdf602.75 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna