Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16597
Í þessari ritgerð er skoðað samband milli tveggja breyta; annars vegar áhugahvatar í námi hjá 12-13 ára grunnskólanemendum og hins vegar íþróttaiðkunar, sem er mæld í fjölda klukkustunda á viku við formlegar íþróttaæfingar. Rannsóknin var gerð meðal 49 nemenda í 7. bekk í þremur grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Notast var við hentugleikaúrtak við framkvæmd rannsóknarinnar, en forráðamönnum var send spurningakönnun þar sem spurt var m.a. um einkunnir og íþróttaástundun.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru í samræmi við fyrri rannsóknir um efnið og gáfu til kynna jákvæða fylgni á milli breytanna íþróttaiðkunar og einkunnar í stærðfræði (r = 0,34), en nánast engin fylgni fannst milli einkunna í íslensku og íþróttaiðkunar (r = –0,03). Að auki var notast við fyrri rannsóknir á sama viðfangsefni sem sýna fram á svipaðar niðurstöður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Íþróttaiðkun og námsárangur.pdf | 1.3 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |