is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16674

Titill: 
  • Kynning á íslenskri tónlist: Ímynd, staða og áhrif
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Íslensk tónlist hefur á undanförnum áratugum orðið ein þekktasta þjóðarafurð Íslendinga og haft mikil áhrif á ímynd landsins, efnahagslíf og ferðamannastraum. Á tímum þegar heimsvæðingin hótar að má út menningarleg einkenni virðist íslensk tónlist blómstra einmitt vegna þeirra sérkenna sem landið gæðir tónlistina. Í seinni tíð hefur verið unnið markvisst að því að skapa íslenskri tónlist, og útflutningi hennar, fasta umgjörð og stórt skref stigið árið 2006 þegar Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) var stofnuð, en ásamt ÚTÓN er tónlistarhátíðin Iceland Airwaves, sem nú er á sínu 15. starfsári, helsti kynningaraðili íslenskrar tónlistar.
    Í þessari ritgerð er fjallað um kynningu og kynningarefni á íslenskri tónlist á erlendri grundu. Teknar eru fyrir stofnanir sem standa að kynningu á íslenskri tónlist, mikilvægi ímyndar og ritstjórnar þegar kemur að því að kynna menningarlegar þjóðarafurðir rædd, auk þess sem fjallað verður um það hvernig ímynd íslenskrar tónlistar hefur orðið til og hvaða hlutverki hún þjónar í því að kynna tónlistina. Einnig verður komið inn á gildi og áhrif útfluttrar tónlistar fyrir Ísland og íslenskt efnahagslíf.
    Höfundur gerði sumarið 2013 tvær kannanir tengdar efni þessarar ritgerðar. Önnur var gerð til þess að kanna þekkingu og viðhorf erlendra ferðamanna til íslenskrar tónlistar og hin var lögð fyrir valda íslenska tónlistarmenn og sneri að reynslu þeirra af þeim stofnunum sem annast kynningu á íslenskri tónlist. Samhliða því að ræða stöðu kynningarmála á Íslandi eru hér settar fram tillögur að hagnýtum úrræðum með von um að íslensk tónlist geti blómstrað sem aldrei fyrr á komandi árum.

Samþykkt: 
  • 25.9.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16674


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ArniThorArnasonKynningAIslenskriTonlist.pdf1.09 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna