is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Kandídatsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16682

Titill: 
  • Langtímarannsókn á tengslum ADHD einkenna á leikskólaaldri við námsárangur í grunnskóla
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna tengsl ADHD einkenna á leikskólaaldri við námsárangur í grunnskóla og athuga þróun einkenna yfir fimm ára tímabil. Þátttakendur voru 50 börn fædd á árunum 2001 til 2003, sem komu á leikskólaaldri í athugun vegna ADHD einkenna á Þroska- og hegðunarstöð (ÞHS), og foreldrar þeirra. Við úrvinnslu rannsóknarinnar var notast bæði við gögn úr sjúkraskrám ÞHS frá því að börnin voru á leikskólaaldri og gögn úr netkönnun sem lögð var fyrir foreldra þegar börnin voru í 4.-6. bekk grunnskóla. Helstu niðurstöður voru að ADHD einkenni á leikskólaaldri virtust ekki hafa tengsl við námsárangur í grunnskóla umfram greindartölu. Hins vegar komu fram áhrif ADHD einkenna, í samvirkni við greind, á íslenskueinkunn í samræmdum prófum 4. bekkjar og að hluta til á námsgetu samkvæmt foreldrum. Einkennum athyglisbrests og ofvirkni fækkaði yfir fimm ára tímabil og talsverður óstöðugleiki var til staðar bæði í greiningum og undirtegundum ADHD yfir tíma. Tæplega tveir af hverjum þremur sem fengu ADHD greiningu á leikskólaaldri myndu enn fá greiningu á grunnskólaaldri. Meginfærsla á milli undirtegunda var úr ADHD blönduð gerð yfir í ADHD með ríkjandi einkennum athyglisbrests.
    Lykilorð: ADHD, námsárangur, langtímarannsókn, stöðugleiki greiningar

Samþykkt: 
  • 26.9.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16682


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ritgerð Steinunn F. Jensdóttir.pdf1.4 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna