Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16700
Í þessu verkefni er fjallað um börn og auglýsingar í sjónvarpi. Skoðaðar eru erlendar rannsóknir frá Kína, Bandaríkjunum og Bretlandi sem leitast við að skýra skilning barna á auglýsingum í sjónvarpi. Fjallað verður um hvort auglýsingar séu að hafa áhrif á börnin og þeirra langanir. Er samhengi milli þess hvað börn eru að horfa mikið á sjónvarpið og með hverjum þau horfa? Hvort þau fái vasapening og hvort þau séu að hafa áhrif á innkaup heimilisins. Einnig verður farið inná þær aðferðir sem auglýsendur nota til þess að ná sem best til barnanna.
Höfundur gerði rannsókn meðal foreldra barna 0-17 ára. Rannsóknin var viðhorfskönnun á netinu og var með henni reynt að sjá hvort að hegðun íslenskra barna væri í takt við þær rannsóknir sem höfundur notaði til þess að kynna sér efnið.
Niðurstöðurnar urðu þær að íslensk börn haga sér á flestan hátt eins og jafnaldrar þeirra erlendis. Þekking þeirra á auglýsingum koma á sama tíma og hjá börnum erlendis. Helsti munurinn er sá að íslensk börn eru að eyða minna af peningum og þau hafa minni áhrif á innkaup heimilisins en jafnaldrar þeirra erlendis.
Lykilorð: börn, auglýsingar, neysla, sjónvarp, barnaefni
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Börn og auglýsingar lokaeintak.pdf | 602.73 kB | Lokaður til...01.08.2100 | Heildartexti |