Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16718
Á morgunfundi Landsbankans 19. september 2013 greindi Magnús Harðarson aðstoðarforstjóri Kauphallarinnar frá því hvernig hann telur góðar aðstæður vera á hlutabréfamarkaði í dag fyrir Landsbankann. En einnig sagði hann að vanda þurfi verk við skráningu bankans. En orðrómur hefur nú legið í lofti um að til stæði skráning Landsbankans, sem frá hruni hefur nánast að fullu verið í eigu íslenska ríkisins.
Hlutabréfamarkaður og aðgengi Landsbankans hf. að honum er viðfangsefni þessarar ritgerðar. Markmið hennar er að leitast við að upplýsa hvort Landsbankinn hf. eigi heima á hlutabréfamarkaði. Fjallað er fræðilega um verðbréfaviðskipti og íslenskur hlutabréfamarkaður kynntur. Í ritgerðinni má finna umfjöllun um Kauphöll Íslands NASDAQ-OMX og hvað felst í skráningu félaga á Aðalmarkað hennar. Stiklað er á stóru í sögu Landsbankans og gerð grein fyrir stöðu hans gagnvart hlutabréfamarkaði. En einmitt um þessar mundir á sér stað margvísleg þróun varðandi skráningu Landsbankans í Kauphöll Íslends.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Elsa_Sol_Gunnarsdottir_BS.pdf | 717.58 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |