is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16765

Titill: 
  • Virkjun frumkraftanna: Ferðamennska eða virkjun í Skaftárhreppi?
Útgáfa: 
  • Október 2013
Útdráttur: 
  • Skaftárhreppur er fámennt sveitarfélag í austurhluta Vestur Skaftafellssýslu. Hreppurinn hefur átt undir högg að sækja í atvinnumálum og fólkfækkun er viðvarandi. Helsti atvinnuvegurinn er hefðbundinn landbúnaður, en undanfarin ár hefur ferðaþjónusta orðið mikilvægur vaxtarbroddur í sveitarfélaginu. Landslag er enda mjög fjölbreytilegt og ber merki um miklar náttúruhamfarir af völdum jökulhlaupa og eldgosa þar á meðal vegna Skaftárelda. Jökulvötnin sem renna um sveitarfélagið hafa sett mikinn svip á landslag og mannlíf sveitarinnar og oft á tíðum ógnað tilvist íbúanna. Nú eru uppi hugmyndir um að virkja sum þessara jökulfalla. Í þessari grein er fjallað um áhrif virkjunar Hólmsár á ferðamennsku og útivist á þessum slóðum. Gerð var spurningakönnun meðal ferðamanna við Öldufell og við Eldgjá og fengust um fimmhundruð svör. Einnig voru tekin viðtöl við um 40 ferðamenn. Rannsóknin leiddi í ljós að fögur og óspillt náttúra er aðal aðdráttarafl svæðisins. Flestir viðmælendur í rannsókninni voru andvígir virkjuninni og nefndu sem ástæðu að þá yrði ekki lengur um ósnortna náttúru að ræða og sjónræn áhrif yrðu neikvæð en við það missir svæðið sjarma sinn. Þar með töldu þeir að minna áhugavert yrði að ferðast um svæðið ef af framkvæmdum yrði. Öldufellssvæðið er enn tiltölulega lítið nýtt af ferðaþjónustunni en með síaukinni umferð um norður hluta Fjallabaks, sér í lagi í Landmannalaugar, er líklegt að syðri hluti Fjallabaks muni gegna auknu hlutverki fyrir ferðaþjónustuna til framtíðar litið.

Birtist í: 
  • Þjóðarspegillinn XIV: Rannsóknir í félagsvísindum - Viðskiptafræðideild
ISBN: 
  • 978 9935 424 17 4
Samþykkt: 
  • 24.10.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16765


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
AnnaDora_Saethorsdottir_VID.pdf576.23 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna