is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Ráðstefnurit > Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16799

Titill: 
  • Ástæður slælegrar upplýsingagjafar stjórnvalda: Skoðanir almennings
Útgáfa: 
  • Október 2013
Útdráttur: 
  • Könnunin varðar viðhorf almennings til upplýsingagjafar stjórnvalda. Spurn-
    ingalisti var sendur á 1.898 manna tilviljunarúrtak úr þjóðskrá í mars 2012.
    Svarhlutfall var 66,9%. Könnunin grundvallaðist fræðilega á rannsóknum um traust til stjórnvalda og áhrif upplýsingalaga á upplýsingagjöf. Markmið könnunarinnar var að skoða viðhorf almennings til upplýsingagjafar og gegnsæis um
    tiltekna málaflokka, þ.e. almannahagsmuni og opinber útgjöld, og hvers vegna
    svarendur teldu að stjórnvöld leyndu slíkum upplýsingum. Svörin reyndust fjöl-
    mörg og viðamikil en spurningarnar voru: (1) Hverjar telur þú vera megin-
    ástæður þess að opinberir aðilar leyni upplýsingum sem eiga erindi við almenn-
    ing og varða almannahagsmuni (umhverfis-, velferðar-, heilbrigðis- og
    menntamál)? (2) Hverjar telur þú vera meginástæður þess að opinberir aðilar
    leyni upplýsingum sem eiga erindi við almenning (skattborgara) og varða opin-
    ber útgjöld, þ.e. úthlutun á almannafé (styrki og fjárveitingar, verksamninga til
    opinberra verkefna o.þ.h.)? Niðurstöðurnar voru margbrotnar og fjölbreyttar.
    Meðal annars má nefna að svarendur töldu að opinberir aðilar leyndu upplýsing-
    um vegna einkahagsmuna, pólitískra sérhagsmuna, spillingar, slælegra vinnu-
    bragða, dómgreindarleysis, fákunnáttu, forsjárhyggju, leyndarhyggju, hroka, van-
    trausts, siðblindu, valdafíknar og virðingarleysis.

Birtist í: 
  • Þjóðarspegillinn XIV: Rannsóknir í félagsvísindum - Félags- og mannvísindadeild
ISBN: 
  • 978 9935 424 17 4
Samþykkt: 
  • 25.10.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16799


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
JohannaGunnlaugsdottir_Felman.pdf497.6 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna