Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1683
Ritgerð þessi er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.- prófs við kennaradeild í Háskólanum á
Akureyri vorið 2008. Ritgerðin er heimildaritgerð og fjallar um hvernig PMT og SMT
taka á hegðunarvanda barna. Ritgerðin skiptist upp í sex kafla. Fyrsti kaflinn fjallar um
aga almennt, aga í skólum og hegðunarvanda barna. Í öðrum kaflanum er fjallað um
umbun og refsingu og notkun umbunarkerfa. Þegar komið er að þriðja kafla fjöllum við
ítarlega um PMT – foreldrafærni og enn ítarlegar í fjórða kafla þar sem tekin eru fyrir öll
þau verkfæri sem PMT – foreldrafærni notast við. Í fimmta kaflanum segjum við frá
SMT – skólafærni og hvernig innleiðing hennar í skóla fer fram. Sjötti kaflinn er svo
umræðukafli þar sem við komum okkar skoðunum á framfæri og gagnrýnum aðferðirnar
eftir bestu getu. PMT- foreldrafærni og SMT- skólafærni eru fremur nýjar aðferðir sem
hafa verið innleiddar í Hafnarfirði frá því árið 2000 og hófst innleiðing á Akureyri árið
2006. Þar sem innleiðing þessara aðferða er hafin í meirihluta leik- og grunnskólum
Akureyrar fannst okkur áhugavert að kynna okkur þessi agastjórnunarkerfi til hins ítrasta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
innri forsíða.pdf | 7.84 kB | Opinn | forsíða | Skoða/Opna | |
nnri forsíðan og undirsíður.pdf | 19.32 kB | Opinn | útdráttur | Skoða/Opna | |
Lokaritgerð _3_.pdf | 283.17 kB | Opinn | heildarskjal | Skoða/Opna |