Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16847
Ritgerð þessi fjallar um tilhögun og framkvæmd fóðrunar reiðhrossa á höfuðborgarsvæðinu. Hún greinir frá niðurstöðum könnunar sem gerð var í hesthúsahverfum þar í apríl árið 2000.
Af helstu niðurstöðum má nefna að fóðrun hrossa á þessu svæði, byggir yfirleitt ekki á reiknuðum fóðurþörfum eða efnagreiningum gróffóðurs. Þekkingargrunnur hestamanna á fóðri og fóðurefnum virðist almennt fremur veikur. Offóðrun og óþörf notkun kjarnfóðurs sýnist algeng miðað við þjálfunarstig hrossanna.
Minnkand notkun þurrheys með tilkomu ferbagga og rúlla hefur lítil áhrif haft á heildarkostnað við heyfóðrun en tíðni heymæði og hrossasóttar hefur dvínað. Múkk er algengt vandamál sem oft virðist mega tengja kjarnfóðurgjöf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
2001_BS_Petur_Halldorsson.pdf | 3.57 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |