Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16859
Markmið rannsóknarverkefnisins er að kanna kostnað þjóðfélagsins við
heilbrigðisþjónustu vegna ofþyngdar og offitu auk þess að finna leiðir sem hugsanlega
lækka bæði beinan og óbeinan kostnað þjóðfélagsins vegna offitu einstaklinga. Ásamt því
að bera saman kostnað og árangur mismunandi úrræða.
Í upphafi er fjallað stuttlega um offitu og ofþyngd sem alþjóðlegt heilbrigðisvandamál en í
síðari köflum er farið yfir hvaða meðferðarúrræði eru í boði á Íslandi, á vegum hins
opinbera og á vegum einkaaðila. Jafnframt er fjallað um heilbrigðiskostnað á Íslandi og
hlutfall heilbrigðiskostnaðar vegna offitu og ofþyngdar á heimsvísu. Einnig er fjallað um
lyfjakostnað á Íslandi vegna offitu og ofþyngdar og kostnað vegna offitumeðferða eins og
magahjáveituaðgerða. Helstu niðurstöður eru að margar offitumeðferðir eru í boði en við
horfum á vaxandi byrði af sjúkdómum og vanvirkni vegna offitu. Ekki hefur verið gerð
kostnaðargreining vegna ofþyngdar og offitu hér á landi og er kostnaður vegna offitu oft
falinn á bakvið sjúkdómsafleiðingar, eins og sykursýki, hjarta og æðasjúkdóma. Kostnaður
vegna offitu er töluverður og er hann mælanlegur í beinum og óbeinum kostnaði. Offita á
Íslandi hefur vaxið gríðarlega og eykur það kostnað heilbrigðisþjónustu
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hrafnhildur_Birgisdóttir_BS_Offita_á_Íslandi.pdf | 2.24 MB | Lokaður til...01.06.2050 | Heildartexti |