Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16866
Markmiðið með þessari ritgerð er að kanna hvaða áhrif hrunið árið 2008 hafði á sálfræðilega samninginn innan fyrirtækja. Greint verður frá því hvernig hrunið átti sér stað og síðan farið kirfilega í skilgreiningar á sálfræðilega samningnum, sem er í raun óskrifaður samningur á milli vinnuveitanda og starfsmanns. Einnig verða tekin fyrir skilgreining og ferli við brot og rof á sálfræðilega samningnum.
Leitast var eftir því að fá svar við því hvort breytingar hafi orðið á sálfræðilega samningnum og margt hafi breyst í þeim efnum frá því fyrir hrun. Niðurstöðurnar voru þær að starfsmenn sem upplifðu breytingu á við harðar samdráttaraðgerðir fundu fyrir broti og rofi á sálfræðilega samningnum. Samdráttaraðgerðum, allt frá mjúkum til harðra, var beitt innan fyrirtækja, einnig kom í ljós að beiting harðra samdráttaraðgerða virtist ekki hafa haft mikil áhrif á mat starfsfólks á eigin þegnhegðun, eigin hollustu og upplifun á sanngirni af hálfu vinnuveitanda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
kristjanabjorg-salfraedilegi_samningurinn.pdf | 980.76 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |