Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1688
Í þessari ritgerð er fjallað um verðmat fyrirtækja með áherslu á banka. Fjallað er um helstu verðmatsaðferðir, takmarkanir og hindranir.
Markmiðið er að finna sanngjarnt virði Kaupþing banka með þremur vinsælum aðferðum. Kaupþing banki er kynntur og verðmetinn.
Settar eru upp sjóðstreymis- arðsemis- og samanburðargreining þar sem þessar greiningar eru vel til þess fallnar að finna út verðmæti banka. Í sjóðstreymis-greiningunni er sjóðstreymi til eiginfjárs núvirt með ávöxtunar¬kröfu eigin fjár, næst er virði hlutabréfa núvirt í arðgreiðslu líkaninu og að lokum eru þrjár kennitölur Kaupþings bornar saman milli ára og við kennitölur annara banka á Íslandi og Norðurlöndunum með samanburðargreiningu
Greining höfundar á niðurstöðum er að Kaupþing banki sé ofmetinn og mælir ekki með kaupum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaskil1.pdf | 994.73 kB | Lokaður | Virði Kaupþings-heild |