Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16892
Umhverfisstjórnunarkerfi geta haft ýmis jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækja. Þar má nefna minni úrgang, minni losun út í andrúmsloftið og jákvæðara viðhorf starfsmanna, birgja og viðskiptavina.
ISO/EN 14001:2004 er umhverfisstjórnunarkerfi sem ýmis fyrirtæki hafa innleitt hér á landi með góðum árangri. EMAS er einnig umhverfis-stjórnunarkerfi en ekkert fyrirtæki hefur enn sem komið er tekið það upp hér á landi.
Umhverfisstjórnunarkerfi felur í sér að fyrirtækin útfæri umhverfisstefnu og birti hana viðkomandi hagsmunaaðilum.
Stefnan þarf að innihalda markmið Moltu ehf. í umhverfismálum og á hvaða hátt sé best að ná fram þeim markmiðum. Auk þess þarf fyrirtækið að gera áætlun um stöðugar úrbætur í umhverfismálum.
Fyrirtækið þarf að halda grænt bókhald en þar kemur meðal annars fram hver megin hráefnis-, orku-, og vatnsnotkun sé í starfsemi fyrirtækisins. Grænt bókhald er endurskoðað líkt og fjárhagsbókhald.
Umhverfisþættirnir í starfsemi fyrirtækisins eru skráðir og vægi þeirra metið.
Í ljós kom að fyrirtækið hefur unnið vel að gerð verklagsreglna og leiðbeininga og er að litlu leyti ábótavant að leggja í innleiðingarferlið.
Lykilorð: Enska
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
moltafinally.pdf | 1.65 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
viðaukijúlí2013.pdf | 1.13 MB | Opinn | Skoða/Opna |