Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16902
Íslenska forystuféð er einstakur fjárstofn í heiminum og ekki eru til heimildir um erlend fjárkyn með sambærileg einkenni. Megin tilgangur þessa verkefnis er að afla gagna svo gera megi grein fyrir skyldleika innan stofnsins og í framhaldi af því koma með tillögur hvernig megi viðhalda stofninum um komandi framtíð án mikillar skyldleikaræktunar.
Skil ætternisupplýsinga voru mun lakari en vonast hafði verið til í upphafi. Þær niðurstöður sem fengust úr þessu gagnasafni gefa ekki rétta mynd af íslenska forystufjárstofninum heldur sýnir skyldlieka þess hóps sem upplýsingar fengust um.
Alls voru ætternisupplýsingar um 1164 einstaklinga í gagnasafninu og var meðalskyldleikaræktarstuðull innan þess 0,0105. Skyldleikaræktaðir einstaklingar voru 151 eða 13% af úrtakinu. Meðalfjöldi skyldleikaræktaðra einstaklinga voru 15 kindur á ári síðustu 7 árin, flestar fæddar árið 2002 en árin þar á undan voru þær mun færri. Meðal skyldleikaræktarstuðull fyrir skyldleikaræktuðu einstaklingana var 0,081. Hæsta gildið á skyldleikaræktarstuðli hjá skyldleikaræktuðum einstaklingi var 0,3438. Af þeim 464 lifandi einstaklingum sem upplýsingar fengust um voru 109 einstaklingar skyldleikaræktaðir eða um 33% af lifandi einstaklingum. Skyldleikaræktarstuðullinn fyrir lifandi einstaklinga er mun hærri en heildar skyldleikaræktarstuðullinn. Hlutdeild sæðingarhrúta í erfðamengi lifandi stofns er mun meiri hjá þeim hrútum sem notaðir hafa verið síðustu 10 árin en þeirra hrúta sem notaðir voru fyrstu árin á sæðingarstöðvunum. Sæðingarhrútarnir sýna nokkuð mikinn skyldleika innbyrðis.
Áframhaldandi viðhald stofnsins felur í sér stjórnun á ræktun hans. Ákjósanlegasta leiðin er kom á skýrsluhaldi fyrir stofninn og fá nákvæmari ætternisupplýsingar sem styrkja stöðu sæðinga. Hefja þarf varðveislu á erfðaefni úr stofninum bæði til að styrkja hann og sem tryggingu á viðhaldi stofnsins í framtíðinni. Út frá ætternisupplýsingunum þarf að gera ræktunaráætlun, þar sem fyrirfram ákveðnar paranir færu fram og þannig reyna að koma í veg fyrir aukningu í skyldleikarækt.
Til að styrkja þetta þyrfti að endurvekja Forystufjárræktarfélag Íslands og stuðla þannig að góðri kynningu stofnsins, vekja almennan áhuga á honum og varðveita menningarlegt gildi hans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_2004_Sigridur_Johannesdottir.pdf | 3.24 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |