is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16903

Titill: 
  • Af góðum hug koma góð verk : verkfæri sem nýtast kennurum nemenda með ADHD
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerðin er skrifuð í þeim tilgangi að varpa ljósi á þau úrræði sem nýtast kennurum nemenda með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) í skólastofunni. Farið er yfir hvernig ADHD lýsir sér og hver helstu einkenni þess séu. Fjallað er um fylgiraskanir sem algengar eru hjá nemendum með ADHD. Síðan er farið yfir helstu meðferðarúrræði sem í boði eru fyrir þá. Til að komast að því hvað nýtist kennurum nemenda með ADHD best í kennslu þá kynnti ég mér heimildir, bæði innlendar og erlendar. Í heimildunum var að finna ógrynni af aðferðum og verður aðeins farið yfir brot af þeim hér. Aðferðirnar sem fjallað er um í þessarri ritgerð eru skipulag, umbunarkerfi, hópavinna og kennsluaðferðir við stærðfræðikennslu. Viðtöl voru tekin við fjóra grunnskólakennara í tveimur skólum á Suðurlandi, til þess að rannsaka hvað nýtist þeim. Reynsla kennarana er síðan flokkuð í sameiginleg þemu og síðan borin saman við það sem ég hef kynnt mér í heimildum.

Samþykkt: 
  • 25.11.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16903


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
lokaverkefni.astrid.pdf1.05 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna