is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16935

Titill: 
  • Atvinnuleitendur 50+. „Þetta er engan veginn eðlilegt ástand“
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknarinnar er að skoða stöðu, líðan og virkni langtímaatvinnuleitenda 50 ára og eldri, upplifun þeirra og viðhorf. Markmiðsúrtak var notað og voru þátttakendur á aldrinum 50-64 ára sem höfðu fullnýtt rétt sinn til atvinnuleysisbóta og fengu fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg. Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð og viðtöl voru tekin við sex einstaklinga. Viðtalsvísir byggðist á hugmyndafræði velsældar (well being), en sú hugmyndafræði og líkan tengt henni er kynnt sérstaklega í fræðilegum kafla.
    Niðurstöður sýna að einstaklingar upplifa atvinnumissi og atvinnuleysi á ólíkan hátt. Atvinnumissir er í flestum tilfellum áfall og allir upplifðu miklar breytingar í kjölfarið. Viðbrögð eru mismunandi bæði fyrst í stað og til lengri tíma litið. Sumir viðmælenda upplifðu mikla vanlíðan en aðrir höfðu tekið þá afstöðu að láta atvinnumissinn ekki skilgreina stöðu sína til lengri tíma. Líðan hafði áhrif á virkni viðmælenda og almennt atferli. Þeir sem lýstu líðan sinni hvað verst áttu erfitt með að vera virkir. Allir viðmælendur upplifðu erfiðleika við að komast aftur inn á vinnumarkaðinn, þeir töldu atvinnutækifæri fá og að ástæðurnar mætti fyrst og fremst tengja aldri þeirra. Viðmælendur sáu aðallega fram á tvær leiðir í stöðunni, að vinna sjálfstætt eða gefast upp á atvinnuleit. Niðurstöður sýna fram á nauðsyn þess að greina aðstæður hvers einstaklings og í kjölfarið að þróa meðferðarúrræði, veita félagsráðgjöf eða eftir atvikum aðra þjónustu byggða á grundvelli slíkrar greiningar. Einnig þarf að staldra við niðurstöður um viðhorf vinnumarkaðar til einstaklinga sem eru 50 ára og eldri og vekja athygli á styrkleikum þeirra og reynslu.

  • Útdráttur er á ensku

    The aim of this study is to examine the status, health and long-term efficacy of jobseekers aged 50 years and older, their experience and attitude. Purposive sampling was used and participants were aged 50-64, who had fully utilized their right to unemployment benefits and received financial assistance from the city of Reykjavík. It was a qualitative research where interviews were conducted with six individuals. Interview indicator was based on the principles of prosperity (well-being), but the concepts and models related to it are presented separately in a theoretical section.
    Results show that individuals experience loss of job and unemployment in different ways. Loss of a job was described as a shock and all participants experienced major changes as a result. Reactions differ both initially and in the long term. Some participants experienced great distress while others had taken the stand not to let the job loss define their position in the long term. How participants were feeling affected their activeness and overall behavior. Those who expressed feeling the worst had a hard time being active. All of the participants experienced difficulty getting back into the employment market and lack of opportunities and considered the reasons primarily related to age. Participants saw predominantly two ways in the situation, working independently or give up the job hunt. Results demonstrate the need to analyze the situation of each individual and subsequently develop therapy solutions, provide social work or other services appropriate based on the basis of such analysis. There is also need to examine the results concerning the attitude of the employment market towards people who are 50 years and older, and draw attention to their strengths and experiences.

Samþykkt: 
  • 13.12.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16935


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hugrún Linda Guðmundsdóttir lokaeintak.pdf1.23 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna