Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16973
Þessi ritgerð fjallar um vinnutíma. Eðli vinnunnar hefur breyst í tímanna rás samfara aukinni tækni og breyttum viðhorfum, það sama á við vinnutímann. Fjallað verður um mismunandi þætti vinnunnar sem og tölfræðilegar upplýsingar um stöðu íslensks vinnumarkaðar. Samanburður er gerður við önnur lönd með sérstaka áherslu á Norðurlöndin. Tekin voru viðtöl við fimm einstaklinga sem allir höfðu reynslu af vinnumarkaði í Danmörku og á Íslandi og gátu borið saman reynslu sína af báðum löndum. Tölfræðileg gögn sýna að Íslendingar vinna rúmum sjö fjörtíu stunda vinnuvikum meira en Norðmenn á ári og fjórum vikum meira en Danir. Tölfræðin fær stuðning í viðtölum við þátttakendur. Niðurstöður benda til að neysluhyggja Íslendinga eigi sinn þátt í að ekki hafi tekist að draga úr vinnutíma hér á landi líkt og á Norðurlöndunum. Þannig hefur neyslan og minna gildi frítíma komið í veg fyrir að kröfur hafi verið gerðar af alvöru um styttingu vinnudagsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hjördís Rut Sigurjónsdóttir.pdf | 826 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |