is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16983

Titill: 
  • Brottfall úr Samvinnu: Reynsla notenda sem hættu í starfsendurhæfingu á Suðurnesjum
  • Titill er á ensku Dropout from Samvinna: Experience of those that quit vocational rehabilitation in Suðurnes, Iceland
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi rannsókn fjallar um brottfallshóp hjá Samvinnu, starfsendurhæfingu á Suðurnesjum. Markmið rannsóknarinnar er að leita eftir reynslu og skýringu á hvers vegna þátttakendur, sem hafa verið í starfsendurhæfingu hjá Samvinnu, hættu þátttöku án þess að ljúka endurhæfingunni. Auk þess verður kannað hver reynsla þeirra er af starfsendurhæfingunni, fyrirkomulagi, skipulagi og samskiptum við ráðgjafa og starfsfólk. Markmiðið er einnig að rannsaka hvernig atvinnustaða þeirra er í dag og hvaðan þeir hafa framfærslu, hvort þeir hafi hug á að hefja aftur starfsendurhæfingu og hvernig þeir sjá framtíð sína fyrir sér. Notuð var blönduð rannsóknaraðferð þar sem var gerð símakönnun og tekin voru sex einstaklingsviðtöl við þátttakendur sem hafa hætt þátttöku hjá Samvinnu. Helstu niðurstöður voru að 59% þeirra sem tóku þátt í símakönnun töldu starfsendurhæfinguna ekki hafa hentað sér. Einstaklingsviðtöl leiddu í ljós að viðmælendur hættu vegna brottflutnings, persónulegra áfalla og vegna þess að starfsendurhæfingin var ekki nægjanlega einstaklingsmiðuð. Viðmælendum fannst vera skortur á skipulagi, sveigjanleika, vali og eftirfylgni. Flestir, eða 86%, hafa framfærslu frá hinu opinbera í dag og einungis 14% eru með launatekjur. Viðmælendur einstaklingsviðtala eru allir bjartsýnir á framtíðina og stefna á nám eða á vinnumarkaðinn. Tæpur helmingur þeirra sem tóku þátt í símakönnun eru í skipulagðri virkni og tæplega tveir þriðju þeirra telja sig þurfa á endurhæfingu að halda.
    Lykilorð: Starfsendurhæfing, brottfall, Samvinna starfsendurhæfing á Suðurnesjum, þróun starfsendurhæfingar, hugtakanotkun í starfsendurhæfingu.

  • Útdráttur er á ensku

    This study examines a group of people that have withdrawn themselves from Samvinna, vocational rehabilitation center in Suðurnes. The study is looking for experience of, and an explanation of why, participants in vocational rehabilitation at Samvinna withdrew themselves from the program without finishing. In addition assess the experience of job rehabilitation, arrangement, organization and communication with consultants and staff. The aim is also to examine how their employment status is today and how they are financing their cost of living, whether they would like to return to vocational rehabilitation and how they see their future. A mixed research method was conducted, telephone survey and individual interviews with six participants who withdrew from the rehabilitation. The main findings were that 59% of those who participated in the telephone survey felt that the job rehabilitation was not suitable. Individual interviews revealed that participants withdrew themselves due to relocation, personal trauma or because the vocational rehabilitation was not sufficiently personalized. The participants felt a lack of planning, flexibility, choice and follow-ups. Most, or 86% of them, currently receive a support from the government and only 14% have regular income. Participants in the personal interviews are all optimistic about the future and intend to go to school or enter the workforce. Nearly half of those who participated in the telephone survey are attending organized activities and nearly two-thirds of them believe they need rehabilitation.
    Keywords: Vocational, withdrawal, Samvinna vocational rehabilitation center in Suðurnes,Iceland, the development of vocational rehabilitation, vocational rehabilitation concepts.

Samþykkt: 
  • 3.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16983


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Jóhanna María Ævarsdóttir.pdf812.53 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna