Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16987
Í þessari ritgerð verður frávikshegðunin ADHD útskýrð og það reifað hvað ADHD einstaklingurinn og fjölskylda hans þurfa að glíma við uppeldislega og tilfinningalega. Greiningaferli ADHD einstaklinga er gerð skil. Fjallað er um samskipti bæði innan fjölskyldu og við fagaðila svo og þau úrræði sem ADHD fjölskyldum standa til boða. Tekin voru viðtöl við fern foreldrapör sem öll eiga það sameiginlegt að hafa gengið í gegnum greiningaferli með barni/börnum sínum. Reynsla þessara foreldra var borin saman, þar bar hæst mikilvægi góðra samskipta og þörf fyrir skýrar upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru. Fjallað er um nauðsyn formfestu í uppeldi og samskiptum við ADHD börn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
KristjanaThoreyGudmundsdottir_BA_Felagsfr_2014.pdf | 910.9 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |