Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17011
Greinargerð þessi er hluti af lokaverkefni til MA-prófs í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Verkefnið er metið til 30 eininga og var unnið sumar og haust 2013.
Greinargerðin fjallar um viðburðinn Raddir fortíðar sem fór fram á Menningarnótt 24. ágúst 2013 í Þjóðminjasafni Íslands, þar sem farin var leiðsögn um grunnsýningu safnsins með leikrænni innkomu tuttugu leikara í þrjátíu og fimm mínútna sýningu. Með miklum velvilja aðstandenda Þjóðminjasafns Íslands varð þessi viðburður að veruleika og mikill heiður fyrir höfund að fá að koma að viðburðardagskrá Þjóðminjasafnsins á Menningarnótt en safnið hefur verið virkur þátttakandi Menningarnætur síðan 2003.
Þessum viðburði og aðkomunni að honum er lýst ítarlega ásamt því að ræddar eru miðlunaraðferðir safna, þó aðallega leiðsögn á söfnum og farið vel í hvernig viðburði sem þessum er stýrt með verkþáttum sem þekktir eru innan verkefnastjórnunar ásamt markmiði og markhópi verkefnisins.
Landslag menningarlegrar forsögu lifandi miðlunar á Íslandi er skoðað í samanburði við það sem verið er að gera erlendis í svipuðum efnum. Menningarlegur tilgangur er ræddur og settur í samhengi við viðhorf sem ríkir gagnvart fjárveitingum til menningar og lista. Því til stuðnings er rætt hvernig vinahugur er oftar en ekki aðalástæða þess að viðburðir sem þessi kemst í framkvæmd þar sem margir leggja hönd á plóg til verksins og oftar en ekki án þess að þiggja laun fyrir. Að lokum er dregið saman hvernig upplifun safngesta er á slíkri miðlunaraðferð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heiddis_Einarsdottir_Raddir_fortidar_lokaverkefni_HMM_2104.pdf | 1.26 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Heiddis_Einarsdottir_Forsida_titilsida_lokaverkefni_HMM_2014.pdf | 32.98 kB | Opinn | Forsíða, titilsíða | Skoða/Opna |