Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1701
Beint frá býli er nýlegt verkefni sem á að stuðla að því að gera bændum kleift að vinna vörur sínar í neysluumbúðir og selja þær milliliðalaust frá býlum sínum. Ábúendur á Smyrlabjörgum í Austur – Skaftafellsýslu hafa áhuga á að fara út í heimavinnslu og sölu á lambakjöti undir merkjum Þokulambs.
Markmið Þokulambs er að vinna og selja vöru sem er í háum gæðaflokki og vel þjónustuð, verður það einnig til þess að varan er seld á hærra verði en þær vörur sem fást í stórmörkuðum.
Markaðurinn sem valinn var er þéttbýlisstaðurinn Höfn, en það er sá þéttbýliskjarni sem er næst býlinu.
Helstu niðurstöður samkeppnisgreiningarinnar voru þær að, ekki eru á Höfn markaðssettar neinar gæða vörur lambakjöts úr heimabyggð. Beinir samkeppnisaðilar eru aðalega tveir, og eru þeir að selja fjöldaframleidda vöru. Kynningar þeirra á lambakjöti því sem þeir hafa til sölu eru ekki miklar. Við inngöngu á markað þarf að uppfylla ýmsar reglugerðir, Þokulamb hefur það forskot að vera nú þegar komið með leyfi til vinnslu afurða.
Viðskiptavinir og birgjar hafa mikil áhrif í litlum fyrirtækjum, en birgjar koma ekki mikið við sögu ídaglegum rekstri Þokulambs þannig að birgjar eru ekki stór ógnun. Höfðað verður til þeirra viðskiptavina sem hafa áhuga á því að kaupa gæðavöru úr heimabyggð, þó hún sé aðeins dýrari, þannig verður samningsstaða viðskiptavina veikt. Það er því vert fyrir Þokulamb að taka næsta skref í átt til framleiðslu og sölu á sínum vörum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þokulamb.pdf | 163.37 kB | Opinn | Heild | Skoða/Opna | |
Heimildaskrá.pdf | 20.8 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Samantekt.pdf | 11.22 kB | Opinn | Samantekt | Skoða/Opna | |
Efnisyfirlit.pdf | 11.11 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna |