Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1703
Mannauðsstjórnun : hlutverk og ástundun hennar á Íslandi
Verkefnið er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á
Akureyri. Hlutverk mannauðsstjóra voru könnuð og rannsókn framkvæmd í
því skyni að meta hvernig unnið er út frá þessum hlutverkum í stórum
íslenskum fyrirtækjum. Einnig er reynt að koma auga á hvað framtíðin ber í
skauti sér fyrir mannauðsstjórnun og sérstaklega hvernig sú framtíð lítur út
fyrir íslensk fyrirtæki.
Mannauðsstjórnun er að verða æ algengari í íslenskum fyrirtækjum, en það er
alltaf hægt að bæta um betur. Það rekstrarumhverfi sem fyrirtæki þurfa að
kljást við í dag, er umhverfi stöðugra breytinga og því er sérstaklega áríðandi
að vera við öllu viðbúinn þegar kemur að því að stjórna mannauð fyrirtækis
svo vel fari.
Lagt var upp með eftirfarandi rannsóknarspurningarnar:
1. Starfa mannauðsstjórar í stórum fyrirtækjum á Íslandi markvisst eftir
fræðum mannauðsstjórnunar?
2. Hefur orðið þróun á undanförnum árum á starfi mannauðsstjóra og ef svo
er, hver er hún og hefur vægi mannauðsstjórnunar aukist í kjölfarið?
Til að leita svara við þessum spurningum, var framkvæmd rannsókn þar sem
viðtöl voru tekin við fimm starfandi mannauðsstjóra í stórum fyrirtækjum á
Íslandi.
Verkefnið er lokað
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| allt (2).pdf | 328KB | Lokaður | "Mannauðsstjórnun"-heild | ||
| efnisyfirlit (2).pdf | 78,5KB | Opinn | "Mannauðsstjórnun"-efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
| heimildir.pdf | 59,7KB | Opinn | "Mannauðsstjórnun"-heimildaskrá | Skoða/Opna | |
| urdrattur.pdf | 63,0KB | Opinn | "Mannauðsstjórnun"-útdráttur | Skoða/Opna |