is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17032

Titill: 
  • Kjarninn á bak við hismið. Staðalímynd hinnar múslímsku konu á Vesturlöndum
  • Titill er á ensku Separate the wheat from the chaff. The Muslim woman stereotype in the West
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð eru skoðaðar ímyndir og birtingarmyndir „hinnar múslímsku konu” á Vesturlöndum og hvernig birtingarmynd hennar á Vesturlöndum breyttist eftir hryðjuverkaárásina á Bandaríkin í september árið 2001. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á hver þessi ímynd er, hvaðan hún kemur og hvernig hún er notuð. Klæðnaður hennar hefur verið mikið í sviðsljósinu og er orðin að tákni fyrir kúgun, bókstafstrú, hryðjuverk og afneitun múslíma á hin svo kölluðu vestræn gildi. Sett hefur verið löggjöf í
    Frakklandi sem bannar meðal annars þennan klæðnað og hafa önnur lönd í Evrópu fylgt á eftir. Sú orðræða virðist vera ríkjandi á Vesturlöndum að „hin múslímska kona” sé kúguð af sínu samfélagi, eiginmanni og trú. Í gegnum tíðina hefur verið mikil þörf hjá
    vesturlandabúum að frelsa þessa konu frá kúgun án þess að kynna sér reynsluheim hennar. Í allri þessari umræðu þá er rödd hinnar múslímsku konu ekki áberandi enda hefur áhersla fjölmiðla verið sú að fjalla um hana en ekki tala við hana.

Samþykkt: 
  • 8.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17032


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA_Sif.Beckers.pdf504.35 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna