Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17038
Greinargerð þessi, viðaukarnir sem henni fylgja og fjórir 30 mínútna langir útvarpsþættir, eru lokaverkefni mitt til M.A.–prófs í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Í greinargerðinni lýsi ég undirbúningi og gerð útvarpsþáttaraðar um Sigríði Pálsdóttur (1913-1941), sem var afasystir mín. Sigríður lifði stutta en örlagaríka ævi þar sem við sögu komu berklar, heimsstyrjöld og merkileg ástarsaga. Öll hefur þessi saga varðveist í stóru bréfsafni í föðurfjölskyldu minni og liggur bréfasafn þetta til grundvallar verkefninu. Ég mun leitast við að varpa með útvarpsmiðlun ljósi á líf íslenskra fjölskyldna á millistríðsárunum þegar hver fjölskylda missti eða gat búist við að missa fólkið sitt úr berklasjúkdómnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA SÁÁ LOKA með forsíðum.pdf | 21.95 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |