is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17047

Titill: 
  • Eiginfjárþörf íslenskra banka. Greining á áhrifum hagstærða á afkomu banka
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að meta nýja eiginfjárkröfu fyrir íslenska banka. Eiginfjárkröfur íslenskra banka taka mið af Basel II staðlinum sem gefinn er út af Basel- nefndinni. Grunnkrafan er 8% og miðast hún við 99,9% öryggisbil á að banki fari ekki í þrot. Viðmiðið hjá Basel-nefndinni er alþjóðlegur banki sem hefur vel dreift eignasafn. Ætla má að krafan þyrfti að vera hærri hér á landi vegna samþjöppunaráhættu sem mögulega er til staðar hér á landi.
    Sett eru upp tvö mismunandi líkön til að greina hvaða hagstærðir það eru sem hafa áhrif á afkomu banka á Íslandi og hjá alþjóðlegum banka. Við mat á alþjóðlegum banka eru notuð gögn frá öllum bönkum á evrusvæðinu. Til að meta nýju eiginfjárkröfuna eru staðalfrávikin úr líkönunum borin saman og hlutfallið þar á milli notað við útreikning á kröfunni. Fjallað er sérstaklega um samþjöppunaráhættu og þau tæki sem eru til staðar til að mæla hana.

    Helstu niðurstöður úr greiningunni á því hvaða hagstærðir hafa áhrif á afkomu banka er að hagvöxtur var ómarktækur í flestum niðurstöðum og að breyting á hlutabréfamarkaði hafði töluverð áhrif, en íslensku bankarnir voru afar stór hluti af hlutabréfamarkaðnum á árunum fyrir hrun. Breyting á markaðsvirði fyrirtækja hafði einnig áhrif. Langtímavextir, skammtímavextir og vaxtamunur voru í báðum líkönum marktæk og höfðu veruleg áhrif.
    Niðurstöður fyrir nýja eiginfjárkröfu eru að tvisvar til fjórum sinnum hærri eiginfjárkrafa þyrfti að vera á Íslandi en hjá alþjóðlegum banka eða á bilinu 18 – 32%. Óumdeilanlegt er að sveiflur hjá íslenskum bönkum eru meiri og dýpri en hjá alþjóðlegum banka og það að eiginfjárkrafan þurfi að vera hærri hér á landi. Þó eru fleiri atriði sem þarf að hafa í huga en eiginfjárkrafan við mat á fjármálastöðugleika og fleiri atriði tilgreind í lok ritgerðar.

Samþykkt: 
  • 9.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17047


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ritgerð með forsíðu_loka.pdf4.14 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna