is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1704

Titill: 
  • Skuldsetning íslenskra heimila : þróun síðustu ára
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fjármál íslenskra heimila hafa mikið verið til umræðu á síðustu misserum. Skuldir eru sagðar hafa aukist og greiðslubyrði sé að knésetja heimilin. Ísland er neysluþjóðfélag og það endurspeglast meðal annars í miklum yfirdrætti og kreditkortaveltu.
    Tilgangur þessa verkefnis var að skoða þróun í fjármálum heimilanna meðal annars með tilliti til kaupmáttar, skulda, vaxta, gengis og vanskila.
    Sett var fram rannsóknarspurningin: „Hvaða áhrif hafði innkoma viðskiptabankanna á íbúðalánamarkaðinn á skuldastöðu heimilanna?“. Til að styðja frekar við vinnslu verkefnisins voru settar fram tilgátur og leitast við að svara þeim.
    Við greininguna voru notuð gögn frá stofnunum sem meðal annars sjá um opinbera hagskýrslugerð og safna upplýsingum er varða viðfangsefnið.
    Niðurstaða verkefnisins er sú að:
    • Skuldir heimilanna hafa aukist til muna á síðustu árum.
    • Vanskil hafa minnkað hlutfallslega.
    • Eignastofn heimilanna hefur ekki aukist í sömu hlutföllum og skuldirnar.
    • Kaupmáttur hefur aukist á síðustu árum.
    Innkoma viðskiptabankanna á íbúðalánamarkaðinn hefur haft áhrif til aukningar útlána. Með vaxandi einkaneyslu almennings hefur eftirspurn eftir lánum aukist. Hafa þarf í huga að einkavæðing bankanna árið 2003 virðist hafa haft í för með sér breytingar á aðgengi að lánsfé.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 16.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1704


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf55.77 kBOpinnSkuldsetning íslenskra heimila - EfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskra.pdf99.42 kBOpinnSkuldsetning íslenskra heimila - HeimildaskráPDFSkoða/Opna
Ritgerðin í heild.pdf449.41 kBLokaðurSkuldsetning íslenskra heimila - heildPDF
Utdrattur.pdf65.82 kBOpinnSkuldsetning íslenskra heimila - ÚtdrátturPDFSkoða/Opna