is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17124

Titill: 
  • Íslam í vestrænum samtíma. Staða múslíma í Vestur-Evrópu á 21.öldinni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er staða trúarbragðanna íslam í Vestur-Evrópu í samtímanum skoðuð. Áhersla umfjöllunarinnar er á múslíma sem einstaklinga, fremur en trúarbrögðin sem heild. Múslímar eru jaðraður hópur í vestrænum samfélögum og hér er leitast við að skoða hvaða forsendur liggja að baki þeirri jöðrun og hvernig hún birtist. Áhrifaþættir geta bæði legið í opinberum þáttum, til dæmis lagasetningu, og líka djúpt í félagsgerð hinna vestrænu samfélaga. Víða á Vesturlöndum vinna landslög ríkja beinlínis gegn trúfrelsi, þrátt fyrir að mannréttindasáttmáli Evrópu tryggi borgurunum trúfrelsi. Þetta leiðir til kerfisbundins ofbeldis á vissum þjóðfélagshópum. Fjölmiðlar hafa mikil völd til að stýra orðræðum og hafa almenn áhrif á samfélagið. Fjölmiðlar geta stýrt því á hverju almenningur hefur skoðun hverju sinni, og að einhverju leyti hvernig þær skoðanir eru, enda er oft vísað til fjölmiðla sem fjórða valdsins. Því er rýnt í það hvernig fréttaflutningur mótar og hefur áhrif á stöðu múslíma í samfélaginu, beint og óbeint. Nokkrar aðsendar greinar um fyrirhugaða moskubyggingu í Reykjavík sem birtust í Morgunblaðinu sumarið 2013 eru teknar fyrir og orðræðugreindar til að draga fram þrástef og undirtón sem einkenndu þá umræðu. Út frá þeim er ályktað um íslenskt samfélag og stöðu íslenskra múslíma með völd fjölmiðla í huga.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis focuses on the current status of Islam in Western Europe. The focus of the discussion is on Muslims as individuals, rather than on Islam as a whole. Muslims are marginalized in Western societies, and here we aim to reveal the preconditions behind that marginalization and how it manifests in these societies. Public factors, such as legislative framework, as well as deeper social structure of the Western societies can have influence on the social status of muslims. In many Western countries national law works against real freedom of religion, although the European Convention on Human Rights is supposed to ensure this freedom. This leads to structural violence on certain social groups. The mass media has great power to influence discourses and has general influence on the society. The mass media can lead public opinion, and is often referred to as the fourth power. Therefore, it is reviewed how media affects the social position of Muslims, both directly and indirectly. The discourse of a few articles from Morgunblaðið from the summer of 2013 about planned building of a mosque in Reykjavík is analyzed in order to see the discursive theme and undertone of the articles. Conclusions about Icelandic society and the status of Muslims within that society are made, with the power of mass media in mind.

Samþykkt: 
  • 14.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17124


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA.ErlaRut.Lokaútgáfa.pdf376.11 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna