is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17132

Titill: 
  • „Ég er á við hvaða strák sem er.“ Margvíslegar birtingarmyndir strákastelpna í barna- og unglingabókum þriggja alda
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritsmíð er fengist við þróun strákastelpuhlutverksins í barna- og unglingabókum frá 19. öld. Í því skyni er sjónum beint að eftirtöldum persónum bóka sem hafa verið þýddar á íslensku: Kapitola í The Hidden Hand eftir E.D.E.N. Southworth; Jóa March í Little Women eftir Louisa May Alcott; Georgína/Georg í Fimmbókunum eftir Enid Blyton; og ónefnda prinsessan í bókum Per Gustavsson.
    Georgína er miðdepill athyglinnar og er ítarlegasta greiningin á strákastelpuhlutverkinu í kafla sem er helgaður henni og höfundi hennar, enda er Georgína meginástæða þess að strákastelpur eru rannsóknarefni ritsmíðarinnar.
    Georgína er í stöðugum átökum við umhverfi sitt, eins og aðrar strákastelpur. Með því að draga átök milli samfélags og strákastelpna fram í dagsljósið er sýnt fram á hvaða mótlæti þær mæta. Þá er því haldið fram að í átökum strákastelpu og samfélags verði til málamiðlun, sem einnig má líta á sem díalektíska þróun, þar sem rammi kvenhlutverksins rýmkar.
    Ástæða er til að ætla að strákastelpur í bókmenntum eigi að sýna fram á úrelt kynhlutverk og helst útvíkka það svo um munar. Breyting á kynhlutverkum er þó ekki, hvorki í raunverulega heiminum né heimi skáldsögunnar, auðsótt mál.

Samþykkt: 
  • 15.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17132


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA.ritgerð.BáraMagnúsd.pdf731.67 kBLokaður til...15.01.2134MeginmálPDF
MA.ritgerð.BáraMagnúsd_titilsida .pdf46.02 kBLokaður til...15.01.2134TitilsíðaPDF
MA.ritgerð.BáraMagnúsdforsida .pdf84.29 kBLokaður til...15.01.2134ForsíðaPDF