Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17173
Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til B.A.-prófs í listfræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er fjallað um myndbirtingu Lísu í Undralandi, annars vegar í bók Lewis Carroll sem kom út árið 1865 og svo í teiknimynd Walt Disney frá árinu 1951. Hér verður leitast við að bera saman þessar tvær ólíku Lísur, annars vegar þá Lísu sem birtist í bók Lewis Carroll myndskreyttri af John Tenniel, og hins vegar þá sem sköpuð var í teiknimynd Walt Disney. Einnig verður fjallað um listamennina sem komu að gerð hvorrar Lísu fyrir sig, og grein gerð fyrir stíl, tíðaranda og ólíkum miðlum. Í ritgerðinni verður leitast við að svara því hvers vegna Lísa í Undralandi sé svo ólík Lísu í Disneylandi sem raun ber vitni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.A.-VERKEFNI-BJORKKONRADSDOTTIR.pdf | 1.92 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |