is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Listaháskóli Íslands > Listkennsludeild / Department of Arts Education > Lokaritgerðir / Theses (MA, M.Art.Ed.) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17237

Titill: 
  • Listabíllinn : sköpun, sjálfbærni og samfélagslist
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Skapandi skólastarf og sjálfbærni eru meðal grunnþátta nýrrar menntastefnu íslenskra stjórnvalda þar sem ný sýn birtist á hvaða hæfni er talin nýtast nemendum best til að búa þá undir framtíðina. Markmiðið með þessu verkefni er að innleiða nýjung í skipulagi og framkvæmd á listmenntun sem tekur mið af samfélagslegum gildum og fellur að markmiðum í grunnþáttum aðalnámskrár. Hugmyndin er að koma á laggirnar listasmiðju á hjólum, „Listabíl“ sem skapandi efnisveitu með helstu verkfærum, endurnýtanlegum efnivið og sýningarrými. Listabíllinn heimsækir skóla og eða stofnanir og býður upp á örnámskeið með sjálfbærni og sköpun að leiðarljósi. Áhersla verður lögð á að fá nemendur til að vinna verkefni sem byggjast á þeirra eigin listrænu sýn og útfærslum. Grunnurinn að verkefninu er sóttur í hugmyndir Reggio Emilia en þungamiðja hugmynda þeirra er lýðræði og sköpun sem fellur vel að nýjum gildum menntastefnu á Íslandi, þ.e.a.s. grunnþáttum sex; læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, jafnrétti, sköpun, lýðræði og mannréttindum. Tilgangurinn með verkefninu er ekki síður að ýta undir nýstárlegar hugmyndir og umfjöllun um breytta kennsluhætti í skólastarfi. Listabíllinn gefur nemendum frelsi til sköpunar, stuðlar að útinámi, eykur skilning á náttúru, sjálfbærni og tengsl við samfélagið.

  • Útdráttur er á ensku

    Creative educational approach and sustainability are among factors promoted in a new government policy for the development of curriculum in Iceland and these factors are also recognized as vital for individual capacity and adaptability in future society. The purpose of the current project is to introduce a novel approach in the implementation of art education that takes community values into account and complies with the new educational policy. The project involves the establishment of a mobile art studio, a bus that promotes the idea of re cycling by collecting industrial “waste” for creation of art in collaboration with students. The bus also contains necessary tools and exhibition space for art-projects executed in collaboration of artists and students. The most important foundation of the project is the Reggio Emilia educational approach which shares fundamental values with the novel Icelandic government policy including: literacy, sustainability, health and well-being, equality, creativity, democracy and human rights. The purpose is to promote new ideas in the approach to education and initiate a critical discussion of conventional teaching methods. The project promotes creative freedom, outside the classroom experiences, and inspires students to think about sustainability, nature and community.

Samþykkt: 
  • 28.1.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17237


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bill_halla_2014.pdf7.74 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna