Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1726
Umhverfisstjórnunarkerfi getur haft ýmis jákvæð áhrif á rekstur fyrirtækis
sem innleiðir slíkt kerfi s.s umhverfisleg-, fjárhagsleg og samfélagsleg.
ISO 14001 er umhverfisstjórnunarkerfi sem átta fyrirtæki á Íslandi hafa
innleitt og flest þeirra með góðum árangri. Umhverfisstjórnunarkerfið felur
í sér að fyrirtækin móti sér umhverfisstefnu og birta hana öllum
hagsmunaaðilum. Stefnan þarf að innihalda markmið fyrirtækis í
umhverfismálum og hvernig gert er ráð fyrir að ná þeim markmiðum
ásamt áætlun um stöðugar úrbætur í umhverfismálum.
Greint verður frá megin þáttum í grænu bókhaldi í ritgerðinni. Grænt
bókhald er efnisbókhald og er endurskoðað líkt og fjárhagsbókhald, þar
kemur fram hver megin hráefnis-, orku- og vatnsnotkun er í starfsemi
fyrirtækisins. Tilteknum fyrirtækjum er skylt að færa grænt bókhald og
greint verður frá því hvaða starfsemi það er en þó getur þessi tegund
bókhalds hentað allri starfsemi.
Könnun var framkvæmd meðal þeirra átta fyrirtækja sem innleitt hafa ISO
14001 umhverfisstjórnunarkerfið. Tilgangur könnunarinnar var að fá
skýrari mynd af því hver ábati innleiðingar ISO 14001 er fyrir fyrirtæki,
hvort og hvaða gallar séu við innleiðingu auk þess að kanna kostnað og
þann tíma sem það tekur að innleiða kerfið.
Könnunin sýndi að flestir þátttakendur töldu enga galla tengda innleiðingu
ISO 14001 en í ljós kom að fulltrúar minnstu fyrirtækjanna í könnuninni
voru ekki jafn ánægðir. Sú niðurstaða gefur til kynna að smærri fyrirtæki
sem vilja innleiða ISO 14001 þurfi aðstoð við innleiðingu bæði ráðgjöf og
einnig fjárhagslegan stuðning. Meðal kostnaður við innleiðingu kerfisins
reyndist vera 4.4 milljónir og meðal tími innleiðingar reyndist vera 17
mánuðir. Einnig leiddi könnunin það í ljós að kostnaðurinn skilar sér í
flestum tilfellum aftur innan tíu ára og fyrirtækið var samkeppnishæfara
eftir innleiðingu að mati þátttakenda í könnuninni.
Lykilorð: ISO 14001. Umhverfisstjórnun. Kostir og gallar innleiðingar.
Umhverfisstefna. Grænt bókhald.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Efnisyfirlit.pdf | 73.25 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Umhverfisstjornun_fyrirtaekja.pdf | 1.28 MB | Opinn | Heild | Skoða/Opna | |
utdrattur.pdf | 56.12 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna |