Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1727
Verkefnið snýr að greiningu og endurbótum á verkferlum í sérhæfðri
flatfiskvinnslu og innleiðingu sjálfvirkni þar sem henni verður við komið.
Spurt er hvort að hagkvæmt sé að breyta verkferlum eða fjárfesta í tækjum til
að auka afköst, nýtingu eða sjálfvirkni í sérhæfðri vinnslu á rúllum úr flatfiski.
Fiskiðjan Bylgja hf. sem er meðalstór fiskvinnsla hýsir verkefnið og leggur til lið
sérfræðinga auk hráefnis, tækja og afurða.
Lið sérfræðinga eða rýnihópur samanstendur af starfsmönnum Bylgju:
Verkstjóra, gæðastjóra, vélvirka, pípulagningamanni, rafvirkja, forstjóra
(rennismið) og höfundi þessarar skýrslu, framleiðslustjóra.
Framkvæmd verkefnisins fólst í að framleiðsluferlið var skilgreint í 7 verkferla:
1. Móttaka og uppþíðing
2. Hausun
3. Roðrif
4. Flökun
5. Snyrting
6. Rúllun
7. Frysting og pökkun
Hver verkþáttur var skilgreindur og gerðar mælingar eftir því sem við átti.
Hópurinn rýndi síðan í hvern verkþátt og reyndi að fá fram hugmyndir að
vænlegum breytingum á hverjum verkþætti. Framkvæmd, tilraunir og
úrvinnsla hugmynda voru síðan framkvæmdar af völdum hópmeðlimum eftir
áhugasviði og kunnáttu viðkomandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
GGlokFinal.pdf | 2.47 MB | Opinn | Sjálfvirkni í sérhæfðri flatfiskvinnslu-heild | Skoða/Opna |