Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1729
Verkefni þetta fjallar um aðferðir til mælinga PCB-efna í sjávarfangi.
Markmið verkefnisins var að þróa aðferð til útdráttar PCB-efna úr fiski með
ASE (Accelerated Solvent Extraction) og greina þau síðan á gasgreini með
ECD nema. Hjá Rannsóknastofu fiskiðnaðarins, nú Matís hafði áður verið
þróuð aðferð til að greina PCB efni þar sem notuð var Soxhlet aðferð við
útdrátt efnanna. Niðurstöður nýju aðferðarinnar voru síðan bornar saman við
þá eldri. Í upphafi voru gerðar breytingar á gasgreininum sem einfölduðu
greininguna og bættu greiningarmörk tækisins.
ASE er tækjabúnaður sem hannaður er með það fyrir augum að stytta
og einfalda útdrátt PCB efnanna úr fiskinum, ásamt því að einfalda hreinsun
þeirra. Prófaðar voru nokkrar aðferðir til útdráttar á ASE tækinu og gerður
Soxhlet útdráttur til samanburðar, að hreinsun lokinni voru síðan bendi
PCB-efnin mæld með gasgreini.
Niðurstaða verkefnisins er sú að útdráttur PCB-efna með ASE er að
gefa jafngóðar niðurstöður og útdráttur með Soxhlet. Nauðsynlegt er þó að
halda áfram í aðferðaþróuninni því henni er ekki lokið með þessu verkefni.
Niðurstöður lofa góðu um að hægt verði að þróa aðferð með þessum
tækjabúnaði með það fyrir augum að fá á hana faggildingu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
PCB efni í fiski lokaútgáfa.pdf | 1.82 MB | Opinn | Þróun aðferðar til mælinga PCB efna í fiski með ASE útdrætti - heild | Skoða/Opna |