is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Listaháskóli Íslands > Listkennsludeild / Department of Arts Education > Lokaritgerðir / Theses (MA, M.Art.Ed.) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17316

Titill: 
  • Listaverk gefur vísbendingar um þrívíða nálgun í litanámi
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari listrannsókn kanna ég hvernig eigin listsköpun og listaverk geta gefið vísbendingar um þrívíða nálgun í litanámi. Rannsóknin er tvíþætt, hún beinist að listaverkinu Málverka díagram sem ég sýndi á einkasýningunni Arkitektúr hugans – útleið í Listasafni ASÍ í Reykjavík árið 2013. Í þessum hluta kanna ég þróun verksins og áhrifavalda þess út frá birtu og litum. Í framhaldi fjalla ég um kennslu mína við Myndlistaskólann í Reykjavík og hvernig mögulegt er að útfæra eiginleika listaverks í þrívítt verkefni í litanámi. Í þessu sambandi greini ég einnig verkefni í litakennslu, þrívíðri formfræði og kennsluefni í litanámi.
    Mitt aðalframlag í þessu verkefni er að kynna og rökstyðja kenningu mína um mikilvægi þess að þróa á markvissan hátt litanám frá tvívíðri nálgun í þrívíða. Því til stuðnings kynni ég til sögunnar Litalíkan sem nýst getur sem kveikja í þessum tilgangi. Líkanið er þrívítt og byggi ég það á þessum rannsóknum og kennslureynslu minni.
    Ég vek máls á hugtaka og orðanotkun á þessu sviði og kanna samræmi skilgreininga á hugtökum í íslensku. Þessi umræða er brýn því tungumálið mótar skynjun okkar. Það er mikilvægur tjáningarmiðill í viðleitni til að skilgreina liti í námi og kennslu sem og í umhverfi og óáþreifanlegri þekkingu einstaklingsins.
    Ritgerðin er tækifæri til að efla umræðu um litanám, þróun þess og vonandi eflir hún meðvitund um mikilvægi þrívíðs litanáms í skólum.
    Lykilorð: Albers, birta, Goethe, Itten, listrannsóknir, listaverk, listkennsla, listnám, litafræði, litanám, litarannsóknir, litir, myndlist, málverka díagram, meistararitgerðir, myndlistarkennsla, Myndlistaskólinn í Reykjavík, Swirnoff, þrívítt, þrívíðu

  • Útdráttur er á ensku

    In this artistic research I explore ways for one’s own creative process and works of art, to help developing a three-dimensional approach to colour studies. The study has two parts. The first part involves an artwork of mine called Málverka díagram (Painting Diagram) that was part of the exhibition Arkitektúr hugans – útleið (Exit – A Diagram of Memories) at ASÍ Art Museum in 2013. In this part I examine the development of the work and its influences according to lighting and colour. In the second part I discuss my teaching at Myndlistaskólinn í Reykjavík (Reykjavik School of Visual Arts) and possibilities of extending properties of works of art into assignments in three-dimensional colour study.
    My main contibution in this thesis is to present and argue for my theory on the importance of deliberately developing colour study from a beginning two-dimensional approach towards a three-dimensional approach. In support of that, I present the Litalíkan (Colour Model), that can be used as an inspiration for colour study. The model is three-dimensional and built on the above research, as well as my teching experience.
    I also discuss the use of concepts and words in this field and explore the consistency of colour concept definitions in the Icelandic language. This discussion is urgent because the language influences our perception. It is an important means of trying to define colours in study and teaching, as well as our environment and the intangible knowledge of the individual.
    The thesis is my contribution to the continuing debate on colour study and its development. Hopefully it will raise the conciousness on the importance of three-dimensional colour study

Samþykkt: 
  • 7.2.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17316


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Eygló_Harðardóttir_MA_ritgerð.pdf2.1 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna