Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17369
Kamínuhitaður heitapottur er greindur og endurhannaður með það að markmiði að auka hitadreifni og nýtni kamínunnar á eldiviði. Til að auka nýtnina eru rifflur soðnar utan á veggi kamínunar og spírall settur inn í reykrör útblásturs. Notast er við dælu til að draga kalt vatn frá potti og dæla um kopar spíral. Vatninu er síðan skilað neðst í pottinn til að auka hitadreifni og upplöndun á vatni. Tvær tilraunir eru framkvæmdar þar sem nýtni kamínunar og hitadreifni er mæld, með og án endurbóta og niðurstöður þeirra bornar saman. Einnig er gerð greining á töpum í hitunarferlinu. Niðurstaðan er að um 30% aukning á nýtni verður á kerfinu eftir að spíral og rifflur eru komnar í. Einnig verður hitadreifing nánast einsleit í vatni pottsins með því að dæla vatni úr spíralnum á botninn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni PRINT.pdf | 1.92 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |