Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17378
Þetta verkefni fjallar um truflanir í jarðneti, ALCOA Fjarðaáls, við hreyfingar á 220kV GIS-skilrofum.
Farið er yfir uppbyggingu jarðneta og sagt frá jarðneti Fjarðaáls, mælingum sem gerðar voru áður en álverið reis og hvernig jarðnetið var sett upp. Farið er líka yfir GIS- skilrofa og skoðað hvað er að eiga sér stað í þeim við rofahreyfingar.
Gerðar voru mælingar fyrir jafnspennukerfi Fjarðaáls við 220kV skilrofahreyfingar og prófað að setja inn auka rofa í aðgerðaferlið sem farið er eftir í rafveitunni og kannað hvaða áhrif það hefði á kerfið.
Einnig var farið yfir háupplausna-mælingar í GIS-kerfinu við skilrofahreyfingar og sagt frá niðurstöðum þeirra mælinga.
Tillögur að lausnum voru settar fram og niðurstöður fyrir verkefnið í heild sinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Truflanir í jarðneti við hreyfingar á 220kV skilrofum.pdf | 12.79 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |