Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17388
Verkefni þetta fjallar um fjaðurstuðul steinsteypu og þá þætti sem hafa mest áhrif á hann. Þessir þættir eru sementsefja, fylliefni og fasaskilin á milli þeirra.
Kannaðar voru ýmsar erlendar rannsóknir um þessi atriði. Einnig þær íslensku rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessu sviði.
Verkfræðistofan Mannvit framkvæmdi rannsóknir á fjaðurstuðli steypu með íslenskum fylliefnum. Dregnar eru ályktanir á grundvelli niðurstöðu rannsóknar Mannvits.
Talið er að aðlaga þurfi frekar erlenda staðla svo sem Eurocode 2 og fib Model Code að eðliseiginleikum íslenskra fylliefna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Fjaðurstuðull steinsteypu.pdf | 3.43 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |