Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/174
Megineinkenni langvinnrar lungnateppu er mæði við daglegar athafnir. Hlutverk iðjuþjálfa í lungnaendurhæfingu er að kenna orkusparandi aðferðir og nota hæfilega ögrandi iðju til að auka vinnuþol og líkamlega getu einstaklingsins. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvort kennsla í orkusparandi aðferðum breytti vinnulagi fólks með langvinna lungnateppu og hvort tengsl voru á milli vinnuaðferða og súrefnismettunar í blóði. Því var leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hver eru áhrif kennslu í orkusparandi aðferðum á framkvæmd athafna og hvaða áhrif hafa orkusparandi aðferðir á súrefnismettun í blóði? Þýði rannsóknarinnar voru sjúklingar með langvinna lungnateppu sem komu inn til endurhæfingar á Reykjalund og voru hindraðir í athöfnum daglegs lífs. Úrtakið var hentugleikaúrtak, 19 einstaklingar sem uppfylltu þau skilyrði að mælast með lungnateppu við innlögn og upplifðu að minnsta kosti talsverða mæði, samkvæmt spurningarlistanum ,,Mati á andnauð”, við einhverja athöfn sem þeir framkvæma reglulega. Rannsóknaraðferðin var lýsandi megindleg hálftilraun, þar sem þátttakandi framkvæmdi athöfn tvisvar sinnum og í millitíðinni fékk hann kennslu í orkusparandi aðferðum. Mælitæki voru gátlisti fyrir framkvæmdagreiningu og súrefnismettunarmælir. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að kennsla iðjuþjálfa í orkusparandi aðferðum skili sér til skjólstæðinga til skamms tíma. Í rannsókninni kom berlega í ljós að súrefnismettun var hærri við lok athafnar þegar þátttakendur nýttu sér orkusparandi aðferðir.
Lykilhugtök: Orkusparandi aðferðir, mæði, langvinn lungnateppa, áhrif kennslu, framkvæmd athafna og iðjuþjálfun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
orku.pdf | 578.37 kB | Takmarkaður | Orkusparandi aðferðir og langvinn lungnateppa - heild | ||
orku-e.pdf | 64.36 kB | Opinn | Orkusparandi aðferðir og langvinn lungnateppa - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
orku-h.pdf | 100.18 kB | Opinn | Orkusparandi aðferðir og langvinn lungnateppa - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
orku-u.pdf | 94.4 kB | Opinn | Orkusparandi aðferðir og langvinn lungnateppa - útdráttur | Skoða/Opna |