Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17546
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er 33. gr. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga nr. 7/1936 (héðan í frá sml.). Þróun dómaframkvæmdar frá árinu 1936 til ársins 2014 verður athuguð. Í ritgerð þessari verða kannaðir dómar Hæstaréttar, annars vegar í öllum þeim níu dómum þar sem fallist hefur verið á að beita 33. gr. sml. frá því lögin voru sett árið 1936 og hins vegar sjö einkar áhugaverðir dómar þar sem beitingu ákvæðisins var hafnað. Þá verður athugað hvort mat Hæstaréttar á óheiðarleika hafi breyst frá árinu 1936 og þá hvernig.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð - forsíða PDF.pdf | 1.61 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |