Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17579
Ýmsar aðfeðir hafa verið notaðar í gegnum tíðina til þess að forprófa atriði í spurningalista. Undanfarna áratugi hefur færst í aukana að nota ekki einungis tölfræðilegar aðferðir heldur líka viðtöl við þátttakendur. Þátttakendur svara þá hverju atriði á spurningalista auk spurninga um túlkun þeirra og skilning. Í þessari rannsókn var aðferðin notuð til þess að reyna að greina vandamál við Marlowe-Crowne spurningalistann, en hann mælir félagslegan æskileika. Þátttakendur voru 20 alls, á aldrinum 18 til 72 ára. Niðurstöðurnar sýndu að vandamál tengdust flestum atriðum listans. Þátttakendur skildu ekki öll hugtök á sama hátt og sumir skildu ekki hvað var átt við með ákveðnu orðalagi. Í sumum atriðum virtist vera um kynjamun eða aldursmun að ræða og önnur atriði virtust ekki mæla félagslegan æskileika. Greinilega þarf að yfirfara listann betur og laga ýmis atriði. Áhugavert er að mörg þeirra vandamála, sem upp komu og tengdust atriðunum á listanum, eru þess eðlis að ekki væri hægt að greina þau einungis með tölfræðiaðferðum. Það sýnir hversu nytsamlegt er að nota einnig viðtöl til að meta atriði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Notkun viðtala við mat á gæðum spurninga Marlowe-Crowne listinn.pdf | 614.84 kB | Lokaður til...15.04.2050 | Heildartexti |