Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17581
Í þessari ritgerð til BA-prófs í bókasafns- og upplýsingafræði er að finna lyklaðar bókfræðifærslur tímaritsins Mannlífs fyrir árin 1984-1986. Greinarnar eru skráðar á kerfisbundinn hátt í samræmi og þeim gefið efnisorð auk þess sem viðmælendur og fyrirsætur eru talin upp. Ritgerðin skiptist í þrjár skrár, í fyrsta lagi aðalskrá, í öðru lagi efnisorðaskrá og í þriðja lagi nafnaskrá. Tilgangurinn með skránni er að auðvelda hverjum þeim sem leitar að efni Mannlífs á fyrrgreindu tímabili leitina. Í inngangi er farið í tilgang skrárinnar, þar er fjallað um það hvað lyklun felur í sér og fjallað stuttlega um tímaritið Mannlíf. Verkalag við skráninguna er útskýrt, einnig uppbygging skránna og tekin dæmi til útskýringa. Þar á eftir er að finna aðalskrá þar sem allar bókfræðiupplýsingar er að finna og greinarnar númeraðar eftir aðalhöfði í stafrófsröð. Næst kemur efnisorðaskrá þar sem finna má lista yfir efnisorð sem greinunum var gefið. Að lokum nafnaskrá þar sem þau mannanöfn sem ekki eru notuð sem efnisorð er að finna. Í efnisorða- og nafnaskrá er vísað í fullar færslur í aðalskrá.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð.pdf | 1.13 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |